Af hrekkjusvínum og hreppsómögum

Í haust vaknaði ég upp í leikhúsi fáránleikans. Kjölfestufjárfestir sem búsettur er í London var búin að hafa hundruð milljarða af breskum innistæðueigendum. Ég átti nú von á því að Bretar myndu verða reiðir við hann, heimta að hann borgaði skuldir sínar og reka hann úr landi.

Gordon Brown varð rosalega reiður enda mega Bretar ekki við því að missa svona mikla peninga. Þeir þurfa jú að geta haldið uppi hreppsómögunum í Buckingham húsinu í London enda góðir við aumingja sem geta ekki unnið.

Mér var nokkuð brugðið þegar að Gordon fór að heimta að börnin mín myndu borga skuldir kjölfestufjárfestisins. Geir og Solla vildu ekki tala við Gordon og finnst hann vera hrekkjusvín en Davíð varð fúll og vildi ekki borga skuldir fjármálasnillingsins og kjölfestufjárfestisins sem enn er auðfúsugestur í heimabæ fjárfrekustu hreppsómaga Bretlands.

Gordon sem er hrekkjusvín, eins og fram hefur komið, setti sig í samband við ESB og IMF og Hollendinga og lagði á ráðin með einelti aldarinnar en hann talaði ekki við kjölfestufjárfestinn sem hafði komið honum í þessi vandræði. Gordon hefur alltaf verið vingjarnlegur við kjölfestufjárfestinn og ráðlagði meira að segja sveitafélögum og góðgerðastofnunum að setja peningana sína inn á reikning hjá kjölfestufjárfestinum. Innistæðurnar á reikningum kjölfestufjárfestisins bólgnuðu því mjög hratt.

Kjölfestufjárfestirinn naut mun meira traust heldur en börnin mín sem ekki fengu að opna bankaútibú í Hollandi. Davíð var búin að segja Sollu og Geir frá því að bankarnir væru í djúpum skít en samt fékk kjölfestufjárfestirinn sem ekki naut trausts lengur að opna útibú í Hollandi og safna þar fullt af peningum. Hrein snilld!

Solla vissi strax hvað gera skyldi þegar að bankarnir hrundu. Hún var ekkert að uppnefna kjölfestufjárfestinn eða álasa honum fyrir kæruleysi sitt heldur setti traust sitt á vin Gordons hann Olle sem er mjög hrifin af auðlindum Íslendinga. Vinir hennar Sollu uppnefndu Íslendinga og kölluðu þá lýðskrumara og úrtölumenn þegar þeir reyndu að benda á að eitthvað væri óvenjulegt við þessar aðstæður. Geir var frekar dapur og pirraður á þessari heimsku þjóð og kallaði hana skríl og vildi ekki að hún væri að kvarta yfir kjölfestufjárfestinum og kallaði það nornaveiðar.

Birni fannst þjóðin líka vond og sendi sérsveit sína af stað og lét hana sprauta úða á vitleysingana sem voru ekki heima hjá sér að horfa á flatskjái sína sem þeir voru búnir að eyða 12.000.000.000.000 í að kaupa sér í góðærinu.

Skríllinn varð ekkert hrifin af háttalagi Geirs og vina hans sem höfðu þegið höfðinglegar gjafir frá kjölfestufjárfestunum og rak þá úr stjórnarráðinu. Kjölfestufjárfestirinn er búin að kaupa fullt af fjölmiðlum. Hann gefur stjórnmálamönnum voða mikla peninga og lætur fréttamenn plata fólk og ræður hverjir stjórna á Íslandi.

Skríllin sem horfir mikið á flatskjái sína og hlustar mikið á fréttamennina og fréttakonurnar ákvað að leyfa vinum hennar Sollu sem nutu líka gjafmildi kjölfestufjárfestanna að vera áfram í stjórnarráðinu. Gordon segir að Solla sé búin að lofa því að börnin mín skulu borga allar skuldir fjárfestisins og segist vera í liði með Dominic Krauss sem þrætir fyrir það að vera vinur Gordons enda er hægt að skammast sín fyrir minna.

Börnin sem eru að borga skuldir kjölfestufjárfestisins eru byrjuð að vera svöng en Jóhanna vill tala við Olle sem hefur heldur ekki viðurkennt að vera vinur Gordons og sem finnst við eiga svo fínar auðlindir. Olle á voða fín embætti sem hann gefur nokkrum einstaklingum ef við viljum leifa honum að kíkja á auðlindirnar okkar og hann getur greitt götur kjölfestufjárfestisins sem hefur verið voða góður við vini Jóhönnu. 

Öll nöfn í þessari sögu eru dulnefni en tilgangurinn með því er að vernda þá sem njóta bankaleyndar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband